Gylfi Þór Sigurðsson framlengir

Kæru Víkingar. Það gleður okkur að tilkynna að Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir nýjan samning við félagið út árið 2027.

Gylfi gekk til liðs við Víkinga í febrúar 2025 og var lykilmaður í liði Víkings sem sótti Bestu deildar skjöldinn á ný í Hamingjuna. Gylfi hefur leikið 46 leiki fyrir félagið og í þeim hefur hann skorað 13 mörk.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið

Gylfa Þór þarf ekki að kynna fyrir neinum, hann er besti landsliðsmaður Íslands frá upphafi og jafnframt sá markahæsti. Leiðtogi á vellinum og hefur verið partur af gríðarlega sterkri miðju Víkings síðastliðið ár. Það er gríðarlega ánægjulegt að hann verði með okkur a.m.k. eitt ár í viðbót því hann setur mikla pressu á sjálfan sig, liðsfélaga og starfslið sem er akkúrat það sem við viljum frá honum.

Til hamingju Víkingar og til hamingju Gylfi Þór! ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings