Karl Friðleifur Gunnarsson framlengir

Kæru Víkingar. Það gleður okkur að tilkynna að Karl Friðleifur Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við félagið út árið 2029.

Karl Friðleifur kom í Hamingjuna árið 2021 og var því hluti af liðinu sem vann fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins í 30 ár ásamt því að verða Mjólkurbikarmeistari sama ár. Karl Friðleifur, eða Kalli, hefur því verið hluti af þessari gríðarlegu velgengni hjá meistaraflokki karla síðustu 5 árin og fögnum við því gríðarlega að hann sé nú búinn að skrifa undir samning út árið 2029. Samtals eru titlarnir orðnir 10, 3 Íslandsmeistaratitlar, 4 Mjólkurbikartitlar og 3 Meistarar meistaranna.

Karl lék sinn fyrsta landsleik fyrir A landslið Íslands fyrr á árinu.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið.

Kalli hefur sannað sig sem besti hægri bakvörður Bestu deildarinnar og hann hefur bætt sig gríðarlega varnarlega síðustu ár. Hann er orðinn gríðarlega mikilvægur partur af Víkingsliðinu, bæði varnar og sóknarlega.

Til hamingju Karl Friðleifur og til hamingju Víkingur ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gylfi Þór Sigurðsson framlengir

Uncategorized

Birta og Freyja í 100-leikja klúbbinn

Forsíðufrétt, Handbolti

Elías Ingi Gíslason gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Kristján Rafn Oddsson gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Elvar Otri Hjálmarsson gengur til liðs við Víking

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Ögmundur Kristinsson í Hamingjuna