Ögmundur Kristinsson í Hamingjuna

Ögmundur Kristinsson, 36 ára, og einn reynslumesti markmaður á Íslandi hefur skrifað undir samning við félagið út árið 2026. Ögmundur hefur að baki langan og fjölbreyttan feril hjá liðum á háu stigi evrópskrar knattspyrnu. Þar á meðal eru Randers FC í Danmörku, Hammarby í Svíþjóð, Excelsior í Hollandi og AEL og Olympiacos í Grikklandi.

Ögmundur var hluti af hinu sögulega íslenska landsliði á Evrópumótinu árið 2016 í Frakklandi. Hann er einn af þremur markmönnum sem ferðuðust með liðinu til Frakklands, og eru þeir nú allir þrír skráðir í Víking. Eftir að hafa spilað áratug erlendis snéri Ögmundur heim til Íslands í Val.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið

Ögmundur hefur gengið til liðs við Víking til að hjálpa okkur í þeim gríðarlega mikilvægu verkefnum sem félagið er í þar sem stefnt er að vinna allt sem er í boði og fara langt í Evrópu og mun hann veita Aroni Snæ nauðsynlega samkeppni um sæti í byrjunarliðinu. Hann er vandaður drengur og frábær markmaður eins er hann mjög góður í hóp sem er okkur mjög mikilvægt hjá Víkingi.

Vertu hjartanlega velkominn í Hamingjuna Ögmundur og við hlökkum til að sjá þig í Víkingstreyjunni ❤️🖤

Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir sömuleiðis að félagið hefur framlengt samning sinn við Ingvar Jónsson út árið 2027. Öll Hamingjan sendir Ingvari og hans fjölskyldu baráttukveðjur og hlökkum sömuleiðis til að sjá hann sem allra fyrst í Hamingjunni.

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Uppskeruhátíð barna- og unglingaráðs í handbolta

Forsíðufrétt, Handbolti

Dagbjört ráðin sem markaðs- og sölufulltrúi og verkefnastjóri BUR

Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Við þurfum á þínum stuðningi að halda!

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sölvi Stefánsson í Víking

Forsíðufrétt

Ársskýrsla Knattspyrnufélagsins Víkings og ársreikningar 2025