Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings

Uppbyggingarsamningur Víkings og Reykjavíkurborgar samþykktur

Knattspyrnufélagið Víkingur hélt aðalfund sinn fimmtudaginn 28. maí sl. Fundurinn var haldinn í hátíðarsal í Víkinni kl. 17:30. Fundarstjórn var í höndum Guðmundar H. Péturssonar.

Helstu niðurstöður fundarins eru eftirfarandi:

Breytingartillögur aðalstjórnar á lögum Knattspyrnufélagsins Víkings voru samþykktar.

Hér má sjá breytingatillögur á lögum.

Björn Einarsson var kjörinn áfram formaður aðalstjórnar Víkings til eins árs.

Þórir Júlíusson, Björn Hallgrímur Kristinsson og Helgi Eysteinsson voru kjörnir í aðalstjórn Víkings til næstu tveggja ára. Vilhjálmur Jens Árnason gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í aðalstjórn. Þá steig Kristín Magnúsdóttir sömuleiðis út sem aðalmaður í stjórn. Kristín heldur áfram í aðalstjórn sem varamaður í stað Sigurbjarnar Björnssonar sem hættir.

Knattspyrnufélagið Víkingur þakkar Vilhjálmi Jens og Sigurbirni fyrir langvinn og ómetanleg störf í aðalstjórn félagsins.

Óskar Sverrisson og Haraldur Haraldsson voru kjörnir skoðunarmenn félagsins.

Fyrir fundinum lá frammi samningur Víkings og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu á athafnasvæðum félagsins til kynningar og samþykktar. Var uppbyggingarsamningurinn samþykktur einróma af öllum mættum fulltrúum deilda eða ráða.

Hér mér finna ársskýrslu Knattspyrnufélagsins Víkings ásamt ársreikningum aðalstjórnar og samstæðu vegna ársins 2025.

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Dagbjört ráðin sem markaðs- og sölufulltrúi og verkefnastjóri BUR

Forsíðufrétt, Handbolti

Við þurfum á þínum stuðningi að halda!

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sölvi Stefánsson í Víking

Forsíðufrétt

Ársskýrsla Knattspyrnufélagsins Víkings og ársreikningar 2025

Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Ragnar Hermannsson ráðinn styrktarþjálfari hjá Víkingi