Jóhanna Elín framlengir!

Knattspyrnudeild Víkings hefur gengið frá nýjum tveggja ára samningi við Jóhönnu Elínu Halldórsdóttur.

Jóhanna gekk til liðs við Víking frá Selfossi fyrir tveimur árum síðan og hefur síðan þá vaxið í hlutverki sínu hjá meistaraflokki kvenna. Jóhanna tók þátt í 20 leikjum í Bestu deild kvenna árið 2025 og hefur farið mikinn á undirbúningstímabilinu og skorað 8 mörk í 7 leikjum í Reykjavíkurmóti og Lengjubikar. Jóhanna Elín á 15 leiki og 1 mark fyrir U-17, U-18 og U-19 ára lið Íslands.

Við erum afar ánægð að framlengja samninginn við Jóhönnu. Hún er metnaðarfull, kröftug og getur leyst margar stöður á vellinum. Það verður spennandi að halda áfram að fylgjast með henni þróa sinn leik í Hamingjunni

segir Einar Guðnason þjálfari liðsins.

Til hamingju Jóhanna og til hamingju Víkingur. ❤️🖤

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur deildarmeistari Grill-66 deildarinnar!

Víkingur TV, Knattspyrna, Forsíðufrétt

Víkingur – Grótta æfingaleikur í beinni á VíkingurTV

Forsíðufrétt

Víkingur gerir samning við Rekstrarvörur

Forsíðufrétt, Handbolti

Fyrirlestur frá Sjálfsaga 12. mars fyrir iðkendur í handbolta

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Breiðablik – Víkingur í beinni útsendingu

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Grace McClellan til Víkings