Igor Mrsulja ráðinn verkefnastjóri hjá Víkingi

Igor Mrsulja hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri hjá Knattspyrnufélaginu Víkingi með áherslu á íþróttasvæði félagsins í Virkinu. Við þekkjum vel til Igor sem hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2022, bæði sem starfsmaður aðalstjórnar og leikmaður fyrir mfl. karla í handbolta. Í starfi verkefnastjóra mun Igor m.a. bera ábyrgð á viðhaldi og undirbúningi fyrir mótahald Víkings í Virkinu í íþróttahúsi og á íþróttasvæðinu í heild í eldri og yngri flokkum ásamt undirbúningi fyrir annað viðburðahald á svæðinu. Einnig kemur verkefnastjóri að samskiptum við verktaka, þjónustuaðila og eftir atvikum hjá Reykjavíkurborg um nauðsynlegt viðhald og framkvæmdir.

Igor Mrsulja er 31 árs gamall og býr yfir haldbærri reynslu af hinum ýmsu störfum fyrir félagið, sér í lagi í Virkinu í Safamýri 26. Knattspyrnufélagið Víkingur bindur miklar vonir við ráðningu ráðningu Igor en kunnátta hans og þekking muna nýtast afar vel í allri starfsemi félagsins.

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur 2 er deildarmeistari í 2. deild karla!

Forsíðufrétt, Borðtennis

Lið karla og kvenna í 1. deild Víkings Íslandsmeistarar

Forsíðufrétt

Skráning hefur opnað í heilsueflingu 60 ára og eldri

Forsíðufrétt

Knattspyrnufélagið Víkingur fagnar 118 árum í dag!

Forsíðufrétt, Borðtennis

Víkingar í úrslitum í 1. deild karla og kvenna í borðtennis

Forsíðufrétt, Handbolti

Gunnar Hrafn Pálsson gengur til liðs við Víking