Skráning í sumarnámskeið Víkings fyrir sumarið 2026 opnar mánudaginn 20. apríl klukkan 12:00.
Athugið að ekki er um að ræða eiginlegt fótbolta eða handboltanámskeið. Sumarnámskeið Víkings er almennt sumarnámskeið með áherslu á íþróttir og hreyfingu. Fyrirkomulagið er þannig að á hverjum degi er ákveðið þema/íþrótt sem megináhersla er lögð á, námskeiðin fara ýmist fram á félagssvæðum Víkings í Víkinni (Traðarlandi) og Virkinu (Safamýri) ásamt því að fara í heimsóknir.
Sumarnámskeið Víkings verða starfrækt bæði í Víkinni og í Virkinu. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-9 ára (f. 2019-2016) og er fjöldatakmörkun fyrir hvert námskeið 60 pláss. Húsið opnar 8:45 og lokar 15:15.
Hvert námskeið er vika í senn og er eingöngu hægt að skrá allan daginn, það er ekki heitur matur innifalinn eins og undanfarin ár og þurfa því iðkendur að mæta með nesti.
Lagt er upp með að eiginlegri dagskrá sé lokið þegar æfingar í 7. og 6. fl hefjast, en milli 14:00-15:00 eru starfsmenn með þeim krökkum sem byrja ekki á æfingu kl 14:00.
Æfingatímarnir eru eftirfarandi:
6 fl karla og kvenna: kl 15:00-16:00 á mánudögum og miðvikudögum í Víkinni og þriðjudögum og fimmtudögum í Virkinu.
7 fl karla og kvenna:kl 14:00-15:00 á mánudögum og miðvikudögum í Víkinni og þriðjudögum og fimmtudögum í Virkinu.
Tímabil
Hvert námskeið er vika í senn og eru námskeiðin eftirfarandi:
Vika 1: 11. -12. júní (2 dagar) Verð 6.000
Vika 2: 15. -19. júní (4 dagar) Verð 12.000
Vika 3: 22. – 26. Júní Verð 15.000
Vika 4: 29. Júní – 3. júlí Verð 15.000
Vika 5: 6. – 10. júlí Verð 15.000
Boðið verður uppá námskeið í ágúst eftir verslunarmannahelgi á vikurnar 10.-14. ágúst og 17.-21. ágúst, fyrirkomulag þeirra námskeið verður auglýst síðar en þar tökum við inn 2020 árganginn líka.
Skráning
Skráning í sumarnámskeið Víkings hér þegar opnar mánudaginn 20. apríl klukkan 12:00
Mikilvægt að skrá sig í rétt námskeið við skráningar þar sem skráð er sér á námskeiðið í Víkinni og í Virkinu (Safamýri).
Allar upplýsingar fyrir sumarnámskeiðin berast í gegnum Abler, mikilvægt er að foreldrar sæki sér Abler appið við skráningu.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á [email protected] eða [email protected]
Skráning í sumarnámskeið Víkings fyrir sumarið 2026 opnar mánudaginn 20. apríl klukkan 12:00.