Jóga hjá Víking
Víkingur býður uppá Jóga tíma undir handleiðslu Ylfu Jónsdóttur.
Tímarnir fara fram í Karate salnum í Virkinu (Safamýri) á þriðjudögum klukkan 20:00.
Áskriftarleiðin virkar þannig að þú kaupir þér klippikort í gegnum Abler.
Hægt er að velja um 12 klipp, 10, 8, 4 og síðan 1 stakt klipp og er verðskráin eftirfarandi:
- 12 Klipp – 20.000 kr
- 10 Klipp – 18.000 kr
- 8 Klipp – 15.000 kr
- 4 Klipp – 7.800 kr
- 1 Klipp – 2.000 kr
Áskriftartímabilið er frá 1. september til 15. desember.
Þegar áskriftin er virk færðu aðgang að bókunarsíðu á Abler appinu, en skráning fyrir hvern tíma opnar á hádegi á miðvikdegi fyrir hvern tíma. Möguleiki er að afskrá sig 12 klst fyrir hvern tíma. Þegar þú síðan mætir í tíma sem þú hefur bókað þig í skráir þú þig inní iPad á staðnum sem heldur utan um stöðuna á klippikortinu þínu.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við [email protected]