fbpx

Gísli Gottskálk í U-20

12. mars 2024 | Knattspyrna
Gísli Gottskálk í U-20
Gísli á að baki 11 leiki fyrir U-19 lið Íslands

Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U20 karla, hefur valið Gísla Gottskálk Þórðarson í hóp sem mun spila tvo vináttuleiki í Ungverjalandi dagana 19. – 23. mars. Gísli á að baki 11 leiki fyrir U-19 lið Íslands og 30 leiki fyrir Víking og hefur skorað 1 mark.

Knattspyrnudeild Víkings óskar Gísla góðs gengis í komandi verkefni.

Áfram Ísland og áfram Víkingur! ❤️🖤