Við þurfum á þínum stuðningi að halda!

Kæru handboltaunnendur Víkings,

Við höfum frábærum fréttum að deila! Meistaraflokkar karla og kvenna hjá Víkingi eru að stíga upp í Olísdeildina á næsta tímabili. Karlaliðið var með verðskuldað 1. sæti í Grill-66 deildinni og kvennalið með 3. sæti, ásamt þeirri gleðilegu ákvörðun HSÍ þings að fjölga liðum úr 8 í 10 á kvennadeild.

Markmiðið er skýrt, við ætlum að gefa handboltanum í Víkingi þann sess sem hann á skilið. Við byggjum á sterkri og sögulegri hefð, ásamt gríðarlega vaxandi áhuga innan félagsins. Iðkendafjöldi yngri flokka hefur aldrei verið meiri í sögu deildarinnar og er starfið orðið eitt það umsvifamesta á landinu. Meistaraflokkunum er ætlað að vera fyrirmynd og stökkpallur fyrir þessa efnilegu iðkendur, leið þeirra yfir á keppnisvöllinn.

Þetta er sameiginlegt verkefni okkar allra.

Við þurfum stuðning þinn.

Fáar hendur hafa unnið mikið og gott starf í vetur og við erum þakklát öllum sjálfboðaliðum. En til að tryggja rekstur og umgjörð meistaraflokkanna þarf meira til og fjárhagslegur stuðningur við meistaraflokkana er mikilvægur í okkar starfi.

Við hvetjum alla félagsmenn og velunnara félagsins til að styðja við Víking með því að greiða 2.500 kr. valgreiðslukröfuna sem var send í heimabanka í dag, hver króna skiptir máli. Ef einhverjir vilja leggja til hærri upphæð er hægt að leggja inn á reikning Handknattleiksdeildar Víkings.

  • Greiða valgreiðslukröfuna (2.500 kr.) sem var send í heimabanka í dag, eða
  • Leggja til hærri upphæð á reikning Handknattleiksdeildar Víkings: Reikningur: 0111-05-217319 | Kt. 4504820139

Hefur þú ekki fengið valkröfu í bankann þinn? Sendu okkur skilaboð á [email protected] og við lögum það.

Við minnum á að framlög eru frádráttarbær skatti þar sem Handknattleiksdeild Víkings er skráð á almannaheillaskrá.

Með samtakamætti eru okkur allir vegir færir — og við treystum á þig!

Með von um góðar viðtökur og þakklæti, Víkingur Handknattleiksdeild❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gylfi Þór Sigurðsson framlengir

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Karl Friðleifur Gunnarsson framlengir

Uncategorized

Birta og Freyja í 100-leikja klúbbinn

Forsíðufrétt, Handbolti

Elías Ingi Gíslason gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Kristján Rafn Oddsson gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Elvar Otri Hjálmarsson gengur til liðs við Víking