Tímamótasamningur um uppbyggingu á athafnasvæðum Víkings

Knattspyrnufélagið Víkingur hefur náð tímamótasamkomulagi við Reykjavíkurborg um framtíðaruppbyggingu á athafnasvæðum Víkings við Traðarland 1 og Safamýri 26. Samningurinn, sem nær yfir eignarhald, uppbyggingu og viðhald íþróttamannvirkja Víkings, var samþykktur einróma í borgarráði Reykjavíkur fimmtudaginn 7. maí.

Uppbyggingarsamningur Víkings hefur átt sér langan aðdraganda en borgarráð samþykkti árið 2008 að gefa félaginu fyrirheit um stækkun á athafnasvæði sínu inn á svæði Stjörnugrófar 18, sem átti að taka gildi árið 2016. Árið 2018 var unnin ítarleg skýrsla af hálfu Víkings og Reykjavíkurborgar um framtíðaraðstöðu félagsins þar sem áhersla var lögð á góða nýtingu mannvirkja, þjónustu við íbúa og heilsueflingu. Jafnframt var unnin greining á bættri aðkomu að svæði Víkings við Traðarland 1 og settar upp sviðsmyndir um framtíðaruppbyggingu á athafnasvæði félagsins. Hins vegar varð ekki af fyrirhugaðri uppbyggingu mannvirkja og stækkun athafnasvæðis félagsins við Traðarland næstu ár þar á eftir. Eftir ítrekuð erindi frá félaginu  til Reykjavíkurborgar var í ágúst 2025 samþykkt innan borgarráðs að gengið yrði til samningaviðræðna við Víking um uppbyggingu á athafnasvæði félagsins. Verkefni samningateymisins voru:

  • Að móta og semja um langtímasýn fyrir aðstöðu Knattspyrnufélagsins Víkings í Stjörnugróf 18 (Markarsvæði) og ná saman um tímalínur breytinga.
  • Að vinna drög að forsögn fyrir deiliskipulagsgerð á þeim grunni og endurskoða umferðaröryggismál.
  • Samhliða taka til endurskoðunar og semja um eignarhald, uppbyggingu og viðhald íþróttamannvirkja Víkings við Traðarland til framtíðar.

Það er mikið fagnaðarefni að Víkingur og Reykjavíkurborg hafa nú loks náð samkomulagi um löngu lofaða uppbyggingu og stækkun á athafnasvæði Víkings. Samningurinn er ítarlegur og tekur fyrst og fremst mið af þörfum félagsins í heild og þörfum annarra hagsmunaaðila innan hverfa Víkings. Það er sömuleiðis gleðiefni að umferðaraðstæður og öryggi barna- og ungmenna verði stórbætt með breyttri aðkomu að félagsvæði Víkings við Traðarland. Sú uppbygging sem er framundan er til marks um skýran metnað Víkings til áframhaldandi framfara, öflugrar þróunar og árangurs á öllum sviðum félagsins til næstu ára og áratuga.

Samningurinn verður ítarlega kynntur félagsmönnum á aðalfundi Knattspyrnufélagsins Víkings síðar í maí mánuði.

Áfram Víkingur!❤️🖤

 

Myndir hér fyrir neðan sýna fyrirhugaða hönnum á félagsheimili Víkings að utanverðu að loknu viðhaldi og uppbyggingu á nýrri 3. hæð:

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Stefán Hrafn valinn í lokahóp U-15 ára landsliðs karla

Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur 2 er deildarmeistari í 2. deild karla!

Forsíðufrétt, Borðtennis

Lið karla og kvenna í 1. deild Víkings Íslandsmeistarar

Forsíðufrétt

Skráning hefur opnað í heilsueflingu 60 ára og eldri

Forsíðufrétt

Knattspyrnufélagið Víkingur fagnar 118 árum í dag!

Forsíðufrétt, Borðtennis

Víkingar í úrslitum í 1. deild karla og kvenna í borðtennis