18. maí 2026
Skráningar á sumarnámskeið Víkings eru í fullum gangi!
Knattspyrnufélagið Víkingur býður upp á sumarnámskeið fyrir börn sumarið 2026 og eru skráningar nú í fullum gangi. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 6–9 ára (fædd 2019–2016) og verða haldin bæði í Víkinni og í Virkinu☀️
Hvert námskeið stendur yfir í eina viku í senn og verður boðið upp á eftirfarandi tímabil:
- Vika 1: 11.–12. júní (2 dagar) – verð 6.000 kr.
- Vika 2: 15.–19. júní (4 dagar) – verð 12.000 kr.
- Vika 3: 22.–26. júní – verð 15.000 kr.
- Vika 4: 29. júní – 3. júlí – verð 15.000 kr.
- Vika 5: 6.–10. júlí – verð 15.000 kr.
Boðið er upp á námskeið bæði í Víkinni og í Virkinu, þar sem lögð er áhersla á skemmtilega og uppbyggilega dagskrá fyrir börn í öruggu og jákvæðu umhverfi.
Athygli er vakin á því að skráning á námskeiðin í Virkinu hefur hingað til verið minni en vonast var eftir. Til þess að hægt sé að halda úti námskeiðum á báðum stöðum þarf næg þátttaka að liggja fyrir. Ef skráning í Virkinu eykst ekki á næstu dögum gæti Knattspyrnufélagið Víkingur þurft að sameina námskeiðin og færa alla starfsemi sumarnámskeiðanna yfir í Víkina. Ef til þess kemur verður endanleg ákvörðun um það tekin þriðjudaginn 26. maí.
Við hvetjum því foreldra sem hafa hug á að skrá börn sín í Virkið að ganga frá skráningu sem fyrst svo hægt verði að tryggja áframhaldandi námskeiðahald á báðum stöðum.
Áfram Víkingur!❤️🖤