Skráning hefur opnað í heilsueflingu 60 ára og eldri

Víkingur er að fara af stað með nýtt og spennandi heilsueflingarverkefni fyrir 60 ára og eldri sem fram fer í Virkinu í Safamýri. Markmiðið er að bjóða upp á markvissa og skemmtilega hreyfingu í jákvæðu og styðjandi umhverfi þar sem þátttakendur geta unnið að bættri heilsu, aukinni vellíðan og notið samveru með öðrum. Til að byrja með verður boðið upp á sex vikna heilsueflingarnámskeið sem hefst mánudaginn 27. apríl. Æfingar fara fram tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum kl. 10:30–11:30, og verða sniðnar að mismunandi getu þátttakenda með áherslu á örugga og faglega leiðsögn. Þjálfari námskeiðsins er Bjarney Gunnarsdóttir, íþróttafræðingur.

Verð fyrir 6 vikna námskeið er 13.900 kr.

Skráning er opin og hægt er að skrá sig hér.

Fyrir frekari upplýsingar eða aðstoð við skráningu er hægt að senda tölvupóst á [email protected] eða [email protected]

Áfram Víkingur❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings