Gunnar Hrafn Pálsson gengur til liðs við Víking

Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Gunnar Hrafn Pálsson, 24 ára skyttu og leikstjórnanda, fyrir komandi keppnistímabil.

Víkingur tryggði sér sigur í Grill 66 deildinni á síðasta tímabili og undirbýr sig nú af krafti fyrir þátttöku í Olís deild karla. Sem hluti af þeirri vegferð er markvisst unnið að því að styrkja leikmannahóp félagsins og er koma Gunnars liður í þeirri uppbyggingu.

Gunnar er fjölhæfur og tæknilega sterkur leikmaður sem getur bæði leyst skyttustöðuna og stýrt leik liðsins. Hann kemur til Víkings frá Gróttu þar sem hann hefur áður leikið í Olís deildinni og aflað sér dýrmætrar reynslu á hæsta stigi íslensks handbolta.

„Við erum mjög ánægð með að fá Gunnar til liðs við okkur. Hann er klár og vinnusamur leikmaður með góða yfirsýn og hæfileika til að hafa áhrif á leikinn bæði sem skytta og leikstjórnandi. Hann mun styrkja hópinn okkar verulega fyrir komandi verkefni,“

segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari meistaraflokks karla og yfirmaður handknattleiksmála hjá Víkingi.

Gunnar sjálfur er spenntur fyrir nýju verkefni:

„Ég er mjög ánægður að ganga til liðs við Víking. Félagið hefur skýra sýn og metnað til að ná árangri í Olís deildinni og það var stór þáttur í minni ákvörðun. Ég hlakka til að koma inn í þennan hóp, leggja mitt af mörkum og taka næsta skref sem leikmaður.“

Víkingur býður Gunnar Hrafn hjartanlega velkominn til félagsins.

Áfram Víkingur!❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning