Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Handknattleiksdeild Víkings hefur ráðið Gísla Steinar Jónsson í mikilvægt hlutverk innan félagsins þar sem hann mun taka þátt í uppbyggingu kvennaboltans sem aðalþjálfari 3. og 4. flokks kvenna ásamt því að vera aðstoðarþjálfari Meistaraflokks kvenna.

Gísli Steinar Jónsson er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og hefur undanfarin ár þjálfað 3. og 4. flokk kvenna hjá ÍBV með góðum árangri. Hann hefur einnig þjálfað yngri flokka kvenna hjá Fjölni ásamt því að sinna þjálfun meistaraflokks kvenna. Fyrir þann tíma bjó hann í Noregi og þjálfaði yngri flokka hjá Fet IL í sex ár.

“Það eru spennandi tímar framundan í félaginu. Mikil fjölgun iðkenda og það verður gaman að taka þátt í uppbyggingu Víkings. Aðstæður eru góðar og gott fólk sem heldur utan um félagið. Nú er félagið búið að fara í gegn um endurnýjun lífdaga í fótboltanum á síðustu árum og fann ég fyrir miklum vilja að gera slíkt hið sama handboltamegin í félaginu” segir Gísli.

Eva Hrund Harðardóttir, aðalþjálfari meistaraflokks kvenna, lýsir yfir ánægju sinni:

„Ég er virkilega ánægð með að fá Gísla til liðs við okkur. Hann hefur tekið þátt í öflugu uppbyggingarstarfi hjá ÍBV og býr yfir mikilli reynslu og þekkingu sem ég er sannfærð um að muni nýtast okkur vel. Ráðning hans er mikilvægt skref í þeirri vegferð sem við erum á og ég hlakka til að vinna með honum að áframhaldandi uppbyggingu og þróun starfs handknattleiksdeildar Víkings.”

Stjórn Handknattleiksdeildar ásamt barna- og unglingaráði hlakka til að sjá Gísla blómstra í nýja hlutverkinu sínu innan félagsins.

Víkingur býður Gísla Steinar hjartanlega velkominn ❤️🖤❤️

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hilmir Christiansen skrifar undir sinn fyrsta samning

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gylfi Þór Sigurðsson framlengir

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Karl Friðleifur Gunnarsson framlengir