FOSSVOGSHLAUP HLEÐSLU 25. ÁGÚST – 10 ÁRA AFMÆLISHLAUP!

23. ágúst 2022 | Almenningsdeild
FOSSVOGSHLAUP HLEÐSLU 25. ÁGÚST – 10 ÁRA AFMÆLISHLAUP!

Fossvogshlaup Hleðslu
Fossvogshlaup Hleðslu verður haldið fimmtudaginn 25. ágúst við Víkina í Fossvogi í tíunda sinn. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km og hefst hlaupið kl. 19:00. Fossvogshlaupið var haldið árlega frá 2010 til 2019, eða í níu ár og var eitt af fjölmennari sumarhlaupunum hvert ár. Eftir tveggja ára hlé ætlum við að halda upp á 10 ára afmæli Fossvogshlaupsins. Í lok hlaups er boðið upp á veglegt kökuhlaðborð í Víkinni.

Vegalengdir
5 og 10 km með tímatöku. Vegalengdir eru löglega mældar og viðurkenndar af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Hlaupaleiðin er hringur í Fossvogsdalnum. Einn hringur er 5 km og tveir hringir eru 10 km. Í tilefni af 10 ára afmæli hlaupsins verður hlaupið öfugan hring í ár. Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km og eftir hlaup fyrir alla þátttakendur. Allir hlauparar sem náð hafa 12 ára aldri eru velkomnir, jafnt byrjendur sem lengra komnir.

Tími og staðsetning
Hlaupið fer fram í Fossvogi fimmtudaginn 25. ágúst kl. 19:00. Hlaupið er frá Víkinni, félagsheimili Víkings, Traðarlandi 1. Vinsamlegast mætið tímanlega.

Þátttökugjald og skráning
Forskráning er opin á netskraning.is fram að hlaupi þann 25. ágúst en einnig fer skráning fram á keppnisdegi í Víkinni frá kl. 16:00-18:30.

Verð í forskráningu fyrir miðnætti 24. ágúst
2.500 kr.- fyrir 19 ára og eldri (f. 2003 og fyrr)
1.000 kr.- fyrir 12-18 ára (f. 2004 – 2010).
Skráning á hlaupadegi
3.500 kr.- fyrir 19 ára og eldri (f. 2003 og fyrr)
1.500 kr.- fyrir 12-18 ára (f. 2005 – 2010).

Afhending hlaupagagna
Hlaupagögn verða afhent í Eins og fætur toga, Höfðabakka 3, 110 Reykjavík, á milli kl. 16:00 og 18:00 miðvikudaginn 24. ágúst og í íþróttasalnum í Víkinni á hlaupadegi, fimmtudaginn 25. ágúst frá kl. 16:00-18:30.

Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í karla- og kvennaflokki í báðum vegalengdum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverjum aldursflokki í báðum vegalengdum. Verðlaunaafhending fer fram í íþróttasalnum í Víkinni að hlaupi loknu. Fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna.

Aldursflokkar
Úrslit verða birt sem heildarúrslit og eftir aldursflokkum:
● 12-18 ára
● 19-29 ára
● 30-39 ára
● 40-49 ára
● 50-59 ára
● 60-69 ára
● 70 ára og eldri

Salerni og fatageymsla
Salerni og fatageymsla (vaktað) er í tengibyggingu við íþróttasalinn. Engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðrum munum og ekki heldur á hlaupaleiðinni.

Almennar upplýsingar
Að hlaupi loknu er þátttakendum boðið upp á hressingu og veitingar í íþróttasalnum í Víkinni. Þátttakendur eru hvattir til að sameinast í bíla og nota almenningssamgöngur. Þeir sem búa næst svæðinu eru beðnir um að skilja bílinn eftir heima. Bílastæði eru í Stjörnugróf, stæði austan við Víkina og við Fossvogsskóla. Athugið að bílastæði vestan við Víkina verða lokuð vegna hlaupsins frá kl. 16:00. Traðarlandi verður lokað fyrir umferð frá kl. 18:45 og þar til síðasti hlaupari er komin í mark (um kl. 20:30)

Skipuleggjendur
Almenningsíþróttadeild Víkings, netfang: [email protected]
Hlaupastjóri: María Helen Eiðsdóttir, sími 697-7733

Við erum á Facebook og hlökkum til að sjá ykkur á fimmtudaginn!