Hleðsluhlaupið valið Götuhlaup árisins 2025

Á hverju ári stendur hlaup.is fyrir kosningu á götu- og utanvegahlaupum ársins en öll hlaup sem birta úrslitin á vefsíðunni eru sjálfkrafa þátttakendur í keppninni. Það er virkilega ánægjulegt að segja frá því að Hleðsluhlaupið var kosið götuhlaup ársins 2025 þann 8. febrúar sl. og er þetta í þriðja sinn sem hlaupið hlýtur þennan titil. Hleðsluhlaupið er haldið í nánu samstarfi við Almenningsdeild Víkings.

Kjósendur gefa hverju hlaupi sem þeir tóku þátt í árinu eina heildareinkunn og einstökum þáttum þess líka en þá er horft til umgjarðar og skipulagningar, hlaupaleiðar, brautarvörslu og -merkinga, drykkjarstöðva, og veitinga og verðlauna að hlaupi loknu en heildareinkunn Hleðsluhlaupsins var 4,75 af 5 mögulegum!

Óskum við skipuleggjendum Hleðsluhlaupsins innilega til hamingju með þennan titil og hlökkum við til að taka á móti ykkur í hamingjunni þann 27. ágúst 2026!❤️🖤

 

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning