Elvar Otri Hjálmarsson gengur til liðs við Víking

Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Elvar Otra Hjálmarsson, sem gengur til liðs við félagið frá ÍR.

Elvar Otri er öflugur leikstjórnandi sem kemur til með að styrkja leikmannahóp Víkings verulega. Hann er marksækinn, les leikinn vel og býr yfir góðri ákvarðanatöku í sóknarleiknum. Þá er hann jafnframt sterkur varnarmaður sem passar vel inn í þá leikstílshugsun og þann metnað sem Víkingur vill standa fyrir.

„Við erum mjög ánægð með að fá Elvar Otra til liðs við okkur. Hann er leikmaður sem getur stýrt leiknum, skapað færi fyrir aðra og tekið ábyrgð sjálfur þegar á þarf að halda. Auk þess er hann öflugur varnarlega og bætir bæði gæði og breidd í hópinn,“

segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Víkings.

Koma Elvars Otra er liður í áframhaldandi uppbyggingu meistaraflokks karla hjá Víkingi, þar sem markmiðið er að byggja upp sterkan, metnaðarfullan og samkeppnishæfan hóp fyrir komandi verkefni.

Handknattleiksdeild Víkings býður Elvar Otra hjartanlega velkominn í Fossvoginn og hlakkar til að sjá hann í Víkingstreyjunni.

Áfram Víkingur!❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning