Elías Ingi Gíslason gengur til liðs við Víking

Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Elías Inga Gíslason, sem gengur til liðs við félagið frá HK.

Elías Ingi er ungur og efnilegur örvhentur leikmaður sem kemur til með að styrkja leikmannahóp Víkings. Hann er marksækin skytta með góða tilfinningu fyrir leiknum og getur einnig leyst stöðu hægra horns þegar á þarf að halda. Sú fjölhæfni gerir hann að spennandi viðbót við hópinn.

„Við erum mjög ánægð með að fá Elías Inga til liðs við okkur. Hann er ungur, metnaðarfullur og efnilegur leikmaður sem býr yfir góðum eiginleikum. Hann getur bæði leyst stöðu skyttu og horns, sem gefur okkur aukna breidd og fleiri möguleika í sóknarleiknum,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Víkings.

Koma Elíasar Inga er liður í áframhaldandi uppbyggingu meistaraflokks karla hjá Víkingi, þar sem markmiðið er að byggja upp sterkan, metnaðarfullan og samkeppnishæfan hóp fyrir komandi verkefni.

Handknattleiksdeild Víkings býður Elías Inga hjartanlega velkominn í Fossvoginn og hlakkar til að sjá hann í Víkingstreyjunni.

Áfram Víkingur!❤️🖤

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Kristján Rafn Oddsson gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Elvar Otri Hjálmarsson gengur til liðs við Víking

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Ögmundur Kristinsson í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Uppskeruhátíð barna- og unglingaráðs í handbolta

Forsíðufrétt, Handbolti

Dagbjört ráðin sem markaðs- og sölufulltrúi og verkefnastjóri BUR

Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings