
Knattspyrnufélagið Víkingur hefur ráðið Dagbjörtu Lenu Sigurðardóttur sem markaðs- og sölufulltrúa, ásamt því að sinna hlutverki verkefnastjóra fyrir barna- og unglingaráð Handknattleiksdeildar Víkings. Dagbjörtu þekkjum við vel en hún hefur starfað fyrir félagið sem íþróttafulltrúi frá því í júlí 2025. Í hlutverki sínu sem markaðs- og sölufulltrúi mun Dagbjört m.a. sinna allri sölu- og markaðssetningu fyrir mannvirki Víkings og leita leiða til að auka tekjuöflun félagsins. Þá mun Dagbjört hafa umsjón með fréttavinnslu og upplýsingagjöf á heimasíðu og öðrum miðlum félagsins ásamt því að sinna skyldum og samskiptum gagnvart helstu samstarfsaðilum Víkings.
Dagbjört Lena hefur sömuleiðis verið ráðin sem verkefnastjóri barna- og unglingastarfs Handknattleiksdeildar Víkings frá og með 1. júní. Dagbjört mun sinna ýmsum verkefnum til að efla og bæta starfið þar sem barna- og unglingastarf Handknattleiksdeildar Víkings hefur vaxið gífurlega undanfarin ár og er í dag með um 550 iðkendur.
Dagbjört Lena, sem er 26 ára gömul, er með BA-gráðu í félagsfræði og hefur einnig lokið diplómanámi í viðburðastjórnun. Félagið fagnar ráðningu á Dagbjörtu til Víkings. Félagið hugsar hátt og mun færni og þekking Dagbjartar nýtast afar vel í næstu skrefum félagsins.