Barna og unglingaráð Handbolta leitar að Verkefnastjóra.

Verkefnastjóri Handbolta

Barna- og unglingaráð Víkings í handbolta leitar að verkefnastjóra á skrifstofu deildarinnar. Um 25% starf er að ræða og hægt að semja um vinnutíma. Starfið hentar til dæmis háskólanemum vel. Um tímabundið starf er að ræða og lýkur ráðningu þann 31. maí 2024.

 

Verkefni:

  • Stuðningur við Barna- og unglingaráð í þeirra verkefnum.
  • Undirbúningur og umsýsla vegna móta.
  • Kynningarstarf á vegum deildarinnar.
  • Efnisstjórnun á samfélagsmiðlum á vegum deildarinnar.
  • Stuðningur við fjáraflanir deildarinnar.
  • Vinna að mótun sumarnámskeiða í samstarfi við yfirþjálfara og íþróttastjóra.

 

Menntunar og hæfniskröfur

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Drifkraftur og góð skipulagshæfni
  • Mikil samskiptahæfni
  • Þekking og áhugi á barna- og unglingastarfi
  • Þekking og áhugi á handbolta
  • Gott vald á íslensku á rituðu máli
  • Góð tölvukunnátta

 

Starfið er unnið í samstarfi við stjórn Barna- og unglingaráðs handknattleiksdeildar Víkings, yfirþjálfara ásamt íþróttastjóra. Um nýtt starf hjá deildinni að ræða og hægt að móta starfið í samstarfi við þann einstakling sem verður ráðinn.

 

Vinsamlegast sendið umsóknir á [email protected].

Öllum umsóknum verður svarað fyrir 3. janúar 2024.

Aðrar greinar

Forsíðufrétt

Tímamótasamningur um uppbyggingu á athafnasvæðum Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Stefán Hrafn valinn í lokahóp U-15 ára landsliðs karla

Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur 2 er deildarmeistari í 2. deild karla!

Forsíðufrétt, Borðtennis

Lið karla og kvenna í 1. deild Víkings Íslandsmeistarar

Forsíðufrétt

Skráning hefur opnað í heilsueflingu 60 ára og eldri

Forsíðufrétt

Knattspyrnufélagið Víkingur fagnar 118 árum í dag!