fbpx

Aðalsteinn ráðinn til Víkings

7. júní 2024 | Handbolti
Aðalsteinn ráðinn til Víkings
Aðalsteinn Eyjólfsson
Aðalsteinn Eyjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla Víkings í handbolta sem og yfirmaður handknattleiksmála félagsins í fullu starfi.
Aðalsteinn sem hefur mikla reynslu hefur þjálfað í Þýskalandi og Sviss síðustu 18 ár við góðan orðstír.
Aðalsteinn varð tvisvar sinnum svissneskur meistari með Kadetten Schaffhausen og einu sinni bikarmeistari á árinum 2020-2023. Hann var valinn þjálfari ársins í Sviss árið 2023 og hefur einnig verið valinn þjálfari ársins í 2 Bundesliga í Þýskalandi. Nú síðast þjálfaði Aðalsteinn GWD Minden í Þýskalandi. Aðalsteinn hefur einnig náð góðum árangri með félagslið á Íslandi á árum áður því hann gerði bæði kvennalið Stjörnunnar og ÍBV að Íslands- og bikarmeisturum í handbolta.
,,Ég er fullur tilhlökkunnar að koma heim og taka við þjálfun Víkings. Það er einnig spennandi og skemmtileg áskorun að taka við sem yfirmaður handknattleiksmála félagins. Víkingur er mjög stórt félag með mikla sögu í handboltanum og með fjölda iðkenda á öllum aldri. Ég skynja mikinn metnað í félaginu að komast aftur í fremstu röð í handboltanum,“ segir Aðalsteinn.
,,Við fögnum því mjög að fá Aðalstein til liðs við félagið. Þetta er einn stærsti og mikilvægasti liðsstyrkur sem Víkingur hefur fengið í handboltanum í háa herrans tíð.  Aðalsteinn hefiur náð frábærum árangri sem þjálfari með sterk félagslið í Þýskalandi og Sviss og fengið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín í báðum þessum löndum. Víkingur bindur miklar vonir við komu Aðalsteins til félagsins og verður það hlutverk hans að koma félaginu í fremstu röð í íslenskum handknattleik á nýjan leik,“ segir Björn Einarsson, formaður Víkings.
,,Barna – og unglingastarf félagsins í yngri flokkum í handknattleik er í miklum blóma með um 450 iðkendur og liggja mikil tækifæri samfara því með stækkun félagsins yfir í Safamýri og hverfinu sem því tilheyrir. Það eru því spennandi tímar framundan í handboltanum hjá Víkingi bæði í karla- og kvennaflokki,“ segir Björn ennfremur.