Yfirumsjón með fjármálum deilda og aðalstjórnar. Tryggir reglulega upplýsingagjöf til aðalstjórnar og stjórna deilda um þróun rekstrar og efnahags deilda og aðalstjórnar. Hefur yfirumsjón með innheimtu æfingagjalda og annarra viðskiptakrafna. Ber ábyrgð á og hefur eftirlit með lausafjárstöðu félagsins og lausafjárstýringu hverju sinni. Tryggir að deildir fylgi reglum um meðferð fjármuna og hefur eftirlit með því að þeim reglum sé fylgt.
Lykilverkefni
Ársuppgjör
Mánaðarleg rekstraryfirlit
Rekstraráætlanir
Færsla bókhalds
Innheimta æfingagjalda
Greining lykiltalna í rekstri
Eftirfylgni með verklagsreglum um fjármál og bókhald
Yfirmaður mannvirkja
Mannvirkjasvið
Dagleg umsjón og stýring fasteigna félagsins hverju sinni, sem og samskipti við Reykjavíkurborg og eftir atvikum við héraðssamband og svæðisfulltrúa vegna þeirra. Umsjón og viðhald æfinga- og keppnisvalla. Ábyrgð á ræstingu og þeirri þjónustu sem veitt er í þeim húsum og hver heildarásýnd þeirra er og hver hún skal að vera. Annast útleigu þessara eigna og samskipti við leigutaka. Ber ábyrgð á starfsmannamálum og starfsmannahaldi í íþróttahúsum á vegum félagsins.
Lykilverkefni
Umsjón með mannvirkjum
Viðhald fasteigna
Umsjón og viðhald æfinga- og keppnisvalla
Veislusalir innan félags
Vaktaplön og þrifplön
Innkaup á rekstrarvöru
Mannvirkjadagatal í Sportabler
Íþróttastjóri
Íþrótta- og afrekssvið
Hefur umsjón og eftirlit með mótaðri íþrótta- og þjálfunarstefnu félagsins sem fram kemur í íþróttanámskrá. Þá fer íþróttasvið með umsjón og eftirfylgni með afreksstefnu Víkings. Íþróttasvið vinnur að forvörnum og fræðslu innan félagsins. Ber að tryggja að þjálfarar deilda þekki og framfylgi gildum félagsins. Hefur yfirumsjón með tímaúthlutunum deilda í íþróttahúsum bæjarins. Hefur yfirsýn yfir alla þjálfara félagsins og færni þeirra. Annast samskipti við ÍSÍ, sérsambönd og aðra sem tengjast íþrótta- og æskulýðsstarfsemi í landinu. Er tengiliður félagsins og aðstoðar deildir við mótahald.
Lykilverkefni
Faglegt starf
Barna- og ungmennastarf
Afreksstarf
Æfingatöflur
Íþróttaskólar
Íþróttir eldri borgara
Fræðsla og forvarnir
Upplýsingagjöf í gegnum Sportabler
Sölu- og markaðssvið
Umsjón með markaðsstefnu og upplýsingagjöf á miðlum félagsins. Standa vörð um ímynd félagsins og leita leiða til að auka tekjuöflun félagsins. Sviðið sinnir sölu- og markaðssetningu fyrir mannvirki félagsins fyrir hvers kyns viðburðahald; veislusali, íþróttasali og íþróttasvæði félagsins í heild. Sölu- og markaðssvið liðsinnir deildum í hvers kyns fjáröflunar- og viðburðahaldi og sinnir skyldum og samskiptum gagnvart helstu samstarfsaðilum félagsins í samráði við deildir.
Lykilverkefni
Sala og markaðssetning
Standa vörð um ímynd félagsins
Almennar auglýsingar og upplýsingar á heimasíðu og samfélagsmiðlum