
Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir með stolti að Erna Guðrún Magnúsdóttir Steinsen og Selma Dögg Björgvinsdóttir hafa framlengt samninga sína við félagið til ársloka 2027.
Þær stöllur þarf vart að kynna, enda báðar verið burðarásar í liðinu frá 2022, skilað liðinu Bikarmeistaratitli 2023, Lengjudeildarmeistaratitli 2023, Meistarar meistaranna 2024 ásamt Reykjavíkurmeistaratitlum. Þær eru báðar gríðarlega hæfileikaríkir leikmenn og hafa síðustu 2 ár verið einar af bestu leikmönnum Bestu deildarinnar í sínum leikstöðum.
Selma Dögg var valin íþróttakona ársins hjá Víking árið 2024 og var Erna Guðrún valin besti leikmaðurinn tvö ár í röð, 2023 og 2024 á lokahófi knattspyrnudeildar.
Þær hafa verið afar samrýmdar síðustu ár, bæði innan vallar sem utan og í desember sl. eignuðust þær báðar drengi, Erna sitt annað barn og Selma sitt þriðja.
Knattspyrnudeild Víkings er afar auðmjúk að þær hafa ákveðið að framlengja samninga sína við félagið, að halda áfram að byggja ofan á það starf sem hefur verið unnið síðustu ár og sýna hvers megnugar þær eru sem leikmenn. Vegferðin fyrir knattspyrnukonur að koma sér til baka eftir barneignir getur verið strembin og er félagið afar stolt að geta stutt við sína leikmenn, enda stórt jafnréttismál að konur geti eins og karlar spilað áfram knattspyrnu eftir barneignir.
Hamingjan er hér ![]()
![]()