Víkingur gerir samning við Rekstrarvörur

Knattspyrnufélagið Víkingur og Rekstrarvörur hafa undirritað samstarfssamning. Með samningnum hefst samstarf tveggja rótgróinna fyrirtækja í Reykjavík sem ætla að byggja upp traust og farsælt samstarf til framtíðar.

Samningurinn var undirritaður af Einari Kristjánssyni, framkvæmdastjóra Rekstrarvara, og Hauki Hinrikssyni, framkvæmdastjóra Víkings.

Á myndinni með þeim eru Andela Jovanovic, rekstrarstjóri Víkings, og Ómar Júlíusson, ráðgjafi hjá Rekstrarvörum.

Knattspyrnufélagið Víkingur er spennt fyrir komandi samstarfi með Rekstrarvörur og bindur miklar vonir við að það verði farsælt og gagnlegt fyrir báða aðila til framtíðar.

Áfram Víkingur!❤️🖤

Aðrar greinar

Víkingur TV, Knattspyrna, Forsíðufrétt

Víkingur – Grótta æfingaleikur í beinni á VíkingurTV

Forsíðufrétt, Handbolti

Fyrirlestur frá Sjálfsaga 12. mars fyrir iðkendur í handbolta

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Breiðablik – Víkingur í beinni útsendingu

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Grace McClellan til Víkings

Forsíðufrétt

Heilsuefling 60 ára og eldri hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Camily Kristal Silva da Rocha til Víkings