Víkingur
Félagið

Um Víking

Knattspyrnufélagið Víkingur. Traðarlandi 1 & Safamýri 26, 108 Reykjavík.

Víkingur er hverfafélag í besta skilningi þess hugtaks. Margar fjölskyldur nefna barna- og unglingastarf félagsins sem helstu ástæðu þess að þær vilja búa í Víkingshverfunum eða fluttu jafnvel þangað á sínum tíma. Víkingar eru þekktir fyrir að búa vel að æskufólki á heimaslóðum sínum. Íbúar hverfanna á aldrinum þriggja til sex ára kynnast félaginu fyrst í Íþróttaskóla barnanna og eftir það liggur leiðin í íþróttastarf á vegum deilda Víkings. Deildir Víkings eru átta talsins. Almenningsdeild, borðtennisdeild, handknattleiksdeild, hjólreiðadeild, karatedeild, knattspyrnudeild, skíðadeild og tennisdeild. Skráðir iðkendur hjá Víkingi, yngri en 16 ára, eru um 1.200 talsins.

Stofnár
1908
Deildir
8
Iðkendur yngri en 16 ára
1.200