Knattspyrna · 8. jan 2024
Viktor Steinn í æfingahóp U-16
Viktor Steinn er fæddur árið 2008 og er samningsbundinn Víking út árið 2025
Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið Viktor Stein Sverrisson til úrtaksæfinga dagana 17. – 19. janúar 2024.
Viktor er aðeins 15 ára gamall og er gríðarlega efnilegur sóknarmaður sem kemur úr yngri flokka starfi Víkings og skrifaði undir samning út árið 2025 í janúar í fyrra.
Knattspyrnudeild Víkings óskar Viktori góðs gengis í komandi verkefni með landsliðinu. Áfram Víkingur og Áfram Ísland❤️🖤