Víkingur slítur viðræðum við Norrköping

Stjórn knattspyrnudeildar Víkings hefur hafnað tilboði sænska úrvalsdeildarliðsins Norrköping í Arnar Gunnlaugsson þjálfara meistaraflokks karla. Jafnframt hefur félagið slitið viðræðum við sænska félagið. Eftir viðræður síðustu daga kom í ljós að töluvert bar á milli félaganna. Arnar Gunnlaugsson hefur skilað félaginu frábæru starfi undanfarin ár og framundan er spennandi og mikilvægt tímabil fyrir okkur Víkinga.

Víkingur.is óskaði eftir viðbrögðum frá Kára Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála hjá Víking

„Tilboð Norrköping var ekki nálægt því sem við teljum virði Arnars Gunnlaugssonar vera. Því ákvað félagið að afþakka frekari samningaviðræður og setja allan fókus á undirbúning fyrir næsta tímabil. Arnar er afar fær þjálfari og mikilvægur okkur Víkingum og er ég afar spenntur fyrir áframhaldandi samstarfi með Arnari.”

Gleðileg jól kæru Víkingar og takk fyrir ómetanlegan stuðning á árinu.

Aðrar greinar

Forsíðufrétt

Októberfest Víkings haldið 19. september

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gunnar Vatnhamar til Vejle

Forsíðufrétt

Yin Yoga með Ylfu hefst á morgun!

Forsíðufrétt, Handbolti

Stuðningsmannakvöld Víkings fer fram 1. september

Forsíðufrétt, Handbolti

Yfirlýsing handknattleiksdeildar Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Steinar Jónsson gerir tveggja ára samning við Víking