Ungir leikmenn skrifa undir samning

25. maí 2023 | Knattspyrna
Ungir leikmenn skrifa undir samning

Knattspyrnudeild Víkings hefur gert samning við tvo unga og uppalda leikmenn til tveggja ára.  Daði Berg Jónsson og Sindri Björn Hjaltested skrifuðu undir samning við félagið í vikunni en þeir koma upp úr yngri flokkum félagsins.

Daði Berg er efnilegur miðjumaður sem skilur leikinn vel og er mikill karakter. Hann hefur einnig mikið markanef og hefur verið lykilmaður 2. flokks á þessari leiktíð. Daði fór með meistaraflokki í æfingaferð til Tyrklands fyrr í vetur og stóð sig mjög vel.

Sindri Björn er naglharður varnarmaður eða djúpur miðjumaður sem elskar að berjast og hafa fyrir hlutunum. Auk þess er hann að sjálfsögðu frábær fótboltamaður. Sindri er líkt og Daði algjör lykilmaður í 2.flokknum.

Það hefur aldrei verið erfiðara en núna að brjóta sér leið inn í meistaraflokkinn okkar en við höfum trú á því að þessir strákar séu tilbúnir að leggja nógu mikið á sig til þess að vera leikmenn framtíðarinnar.

Knattspyrnudeild Víkings er afar ánægð að hafa tryggt sér krafta Daði & Sindra til næstu ára. 

Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála ásamt Daða Berg
Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála ásamt Sindra Björn