Tilkynning vegna leiks Víkings og Leiknis R.

21. september 2021 | Knattspyrna
Tilkynning vegna leiks Víkings og Leiknis R.
mynd/fotbolti.net

Í sumar hafa verið í gildi fjöldatakmarkanir og er þessi leikur engin undantekning. Nú þegar er orðið uppselt á leikinn miðað við tvö 500 manna hólf, en með eftirfarandi aðgerðum verður hægt að fjölga miðum og selja sérstaklega í stæði (en ekki í sæti).
Til þess að gera fleirum kleift að mæta á leikinn verður gerð krafa um að gestir 16 ára og eldri framvísi neikvæðri niðurstöðu COVID-19 hraðprófs. Þetta er gert til þess að sem flestir geti upplifað þá stemningu sem mun vera í Víkinni á laugardaginn og hvatt liðið okkar áfram. Börn fædd 2006 og síðar telja ekki í gildandi takmörkunum.

Hraðpróf, sem er ókeypis, er pantað í gegnum slóðina https://hradprof.covid.is og vekjum við athygli á að COVID-19 sjálfspróf er ekki nóg, heldur þarf að fara í hraðpróf á fimmtudag eða föstudag, þar sem prófið má ekki vera meira en 48 klst gamalt. Hraðpróf eru opin alla virka daga frá 08:00 til 12:00 og frá 12:45 til 20:00.

Verði leiknum frestað til sunnudags vegna veðurs er hraðpróf frá fimmtudeginum útrunnið.
Miðasala á aukamiðum fer fram í miðasöluappinu Stubbi og hefst miðvikudaginn 22. september kl. 11:00.
Að gefnu tilefni er rétt að taka það fram, að sjái einhverjir þeirra sem hafa nú þegar keypt miða á leikinn sér ekki fært að uppfylla skilyrði um hraðpróf þá eiga þeir aðilar fullan rétt til endurgreiðslu og munu aðrir stuðningsmenn hafa færi á að kaupa þá miða sem losna vegna slíks. Þá er jafnframt rétt að taka það sérstaklega fram að aðrir miðar en þeir sem eru útgefnir í gegnum Stubb, eins og t.d. opnir miðar frá Ölgerðinni á leiki í Pepsi Max deildinni, munu ekki gilda á leikinn.
Allar óskir um endurgreiðslur aðgöngumiða skal senda á netfangið [email protected]

Áfram Víkingur!