Tilkynning frá knattspyrnudeild Víkings

Kæru Víkingar.

Það er okkur afar þungbært að greina frá því að okkar allra besti Ingvar Jónsson, aðalmarkvörður Víkinga, hefur greinst með illkynja krabbamein og er nú á leið í lyfjameðferð við meininu. Víkingur mun styðja þétt við bakið á Ingvari og fjölskyldu hans í þessu erfiða verkefni og erum við þess fullviss um að hann hafi sigur að lokum, enda fæddur sigurvegari.

Víkingur og fjölskylda Ingvars óska eftir því að fjölmiðlar sýni Ingvari og fjölskyldu skilning á þessum erfiðu tímum og veiti þeim svigrúm og næði til að takast á við verkefnið framundan.

Virðingarfyllst, Víkingur

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Uppskeruhátíð barna- og unglingaráðs í handbolta

Forsíðufrétt, Handbolti

Dagbjört ráðin sem markaðs- og sölufulltrúi og verkefnastjóri BUR

Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Við þurfum á þínum stuðningi að halda!

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sölvi Stefánsson í Víking

Forsíðufrétt

Ársskýrsla Knattspyrnufélagsins Víkings og ársreikningar 2025