Þrjár tilnefningar | ÍBR

11. desember 2023 | Knattspyrna
Þrjár tilnefningar | ÍBR

Í dag tilkynnti Íþróttabandalag Reykjavíkur um tilnefningar til Liðs ársins og Íþróttafólks ársins. Meistaraflokkur kvenna, Meistaraflokkur karla og leikmaður meistaraflokks karla, Birnir Snær Ingason eru þar á meðal.

Árið 2023 var stórkostlegt fyrir meistaraflokkana okkar.

Stelpurnar okkar urðu Lengjudeildarmeistarar, Lengjubikarmeistarar og Mjólkurbikarmeistarar.

Strákarnir okkar urðu Íslands- og Bikarmeistarar í 2 skiptið á 3 árum. Birn­ir Snær Inga­son var einnig kjör­inn besti leikmaður­inn í Bestu deild karla í fót­bolta árið 2023 af leik­mönn­um deild­ar­inn­ar og fékk þau verðlaun afhent í síðasta leik tímabilsins hjá strákunum.

Lið ársins og Íþróttafólk ársins verður tilkynnt miðvikudaginn 13.desember við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur

Knattspyrnudeild Víkings óskar þeim öllum til hamingju með tilnefningarnar og við getum ekki beðið eftir að sjá þau öll aftur á Heimavelli Hamingjunnar.