Svanhildur Ylfa til Svíþjóðar

Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna er á leið til Elfsborg í Svíþjóð. Svanhildur er unnusta Ara Sigurpálssonar sem var seldur á dögunum frá Víking til Elfsborg.

Svanhildur, sem fædd er 2003, spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir HK/Víking árið 2019 og hefur frá 2020 verið hluti af liði Víkings. Svanhildur hefur frá 2020 verið lykilmaður í liði Víkings sem hefur notið mikillar velgengni og endaði í 3.sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð. Með liðinu varð Svanhildur Mjólkurbikarmeistari, Lengjubikarmeistari, Lengjudeildarmeistari árið 2023, Meistari Meistaranna árið 2024 ásamt því að vinna tvo Reykjavíkurmótsmeistaratitla. 

Knattspyrnudeild Víkings óskar Svanhildi velgengni og hamingju í Svíþjóð og um leið þökkum við henni kærlega fyrir sitt framlag til félagsins. Sjáumst fljótlega í Hamingjunni Svanhildur!  ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gestur Alexander Hafþórsson skrifar undir samning

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Atli, Sveinn, Haraldur, Davíð og Viktor á láni

Víkingur TV, Knattspyrna, Forsíðufrétt

Breiðablik – Víkingur | Lengjubikarinn 2026 úrslitaleikur