Sölvi Stefánsson í Víking

Sölvi Stefánsson (f. 2007) hefur gert þriggja og hálfs árs samning við Knattspyrnudeild Víkings. Danska liðið AGF keypti Sölva árið 2023 frá Víking en hann snýr heim í Hamingjuna þegar glugginn opnar aftur 17.júlí næstkomandi. Sölvi hóf knattspyrnuferilinn sinn með Víking og hefur leikið upp alla yngri flokka Víkings.

Þrátt fyrir ungan aldur náði hann að spila 3 meistaraflokks leiki með Víking m.a. í 6-2 sigri gegn Magna í Mjólkurbikarnum árið 2023.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið

Sölvi er einn af efnilegustu hafsentum landsins og er uppalinn víkingur. Hann fór aðeins í 2 ár til AGF og er nú á leiðinni heim og það gleður okkur mikið að taka á móti honum aftur. Hann er svo sannarlega framtíðarmaður og er með gríðarlega hátt þak til að ná langt.

Vertu hjartanlega velkominn aftur í Hamingjuna Sölvi 🖤❤️

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings