Petit Hamingjumótið verður haldið helgina 13. – 14. ágúst í Víkinni

Óskað eftir sjálfboðaliðum á Petit Hamingjumótið

Knattspyrnudeild Víkings heldur Petit Hamingjumótið á Heimavelli hamingjunnar í Víkinni helgina 13. – 14. ágúst.

Mikið er um að vera hjá Knattspyrnudeild Víkings vegna þátttöku í Sambandsdeild UEFA og nú þurfa Víkingar að standa saman og leggja félaginu lið.

Óskað er eftir sjálfboðaliðum í dómgæslu. Það þarf enga alþjóðadómara heldur fólk sem er tilbúið að standa inni á vellinum með krökkunum og hafa gaman af og leiðbeina með grunnatriði knattspyrnunnar (innspörk, horn, miðju, byrja leik).
Úrslit eru ekki skráð. Hver dómaravakt er sirka 90-120 mín.

Þeir einstaklingar sem hafa tök að leggja okkur lið að senda póst á [email protected] og gefa upp nafn og símanúmer, tilgreina hvorn daginn þeir eru tilbúnir að dæma á og hvort það sé fyrir eða eftir hádegi.

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings