Mótsmiðasala á heimaleiki Víkings í Sambandsdeild Evrópu

Kæru Víkingar. Í október, nóvember og desember eru framundan 3 risastórir heimaleikir í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Heimavöllur Hamingjunnar flyst tímabundið á Kópavogsvöll dagana 24.október, 7.nóvember og 12.desember.

Fyrirkomulag miðasölu er aðeins frábrugðið því sem við þekkjum frá heimaleikjum í undankeppni Sambandsdeildarinnar en nú verða til sölu svokallaðir “Mótsmiðar” sem gilda þá á alla 3 heimaleiki Víkings í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar en aðeins 304 slíkir miðar eru í boði og verða þeir allir í hólfi A.

  • Mótsmiði fyrir fullorðna kostar 5.990 (3 leikir) og 990 fyrir börn (3 leikir).
  • Stakur miði á 1 leik mun kosta 3.000 og 500 fyrir börn.

Ársmiðahafar Víkings fá SMS með hlekk kl 12:00 á morgun, þriðjudaginn 15.október og miðasala fer fram í gegnum Stubb.

Almenn mótsmiðasala hefst svo kl. 12:00, miðvikudaginn 16.október og endar á miðnætti sama kvöld, að því gefnu að þeir seljist ekki upp til ársmiðahafa.

Almenn miðasala á leikinn gegn Cercle Brugge hefst svo kl. 12:00 á föstudag, 18.október.

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning