Kristófer nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna

Gengið hefur verið frá ráðningu Kristófers Sigurgeirssonar, sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna til næstu tveggja ára.

Kristófer kemur nýr inn í þjálfarateymi liðsins, sem sendir með því skýr skilaboð um að hvergi er slegið af á þeirri leið sem mörkuð hefur verið til frekari afreka. Kristófer kemur til liðsins frá Breiðablik þar sem hann lét af störfum ásamt aðalþjálfara liðsins á liðnu sumri. Kristófer býr yfir mikilli reynslu sem aðstoðarþjálfari kvennaliðs á hæsta “leveli”, en jafnframt og ekki síður af reynslu sem aðalþjálfari karlaliða Reynis í Sandgerði og Leiknis og sem aðstoðarþjálfari HK, Fjölnis og Vals. Auk töluverðrar reynslu af þjálfun yngri flokka kvenna.

Víkingar vænta mikils af Kristófer og bjóða hann velkominn til starfa. Áfram Víkingur!

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Uppskeruhátíð barna- og unglingaráðs í handbolta

Forsíðufrétt, Handbolti

Dagbjört ráðin sem markaðs- og sölufulltrúi og verkefnastjóri BUR

Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Við þurfum á þínum stuðningi að halda!

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sölvi Stefánsson í Víking

Forsíðufrétt

Ársskýrsla Knattspyrnufélagsins Víkings og ársreikningar 2025