Jasmín Erla í Víking

Kæru Víkingar, Jasmín Erla Ingadóttir hefur gert samning við Knattspyrnudeild Víkings um að spila með liðinu út tímabilið 2026.

Jasmín Erla er 27 ára gömul og leikur sem sóknarmaður, kemur til Víkings frá Val og hefur hún skorað 41 mark í 172 leikjum fyrir Val, Stjörnuna, FH og Fylki. Jasmín lék einnig eitt tímabil með Apollon Limassol á Kýpur. Hún var jafnframt markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar árið 2022.

Jasmín á 23 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 2 mörk.

Vertu hjartanlega velkomin í Hamingjuna Jasmín Erla! ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings