Helena Ósk semur við Víking

Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir að Helena Ósk Hálfdánardóttir (f. 2001) hefur samið við félagið til næstu tveggja ára. Helena kemur til liðs við Víking frá Val þar sem hún hefur verið síðustu tvö tímabil en þar á undan hjá FH og Breiðablik, en Helena hefur spilað 197 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 39 mörk. Einnig á Helena 23 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 4 mörk.

Gefum Einari Guðnasyni, þjálfara meistaraflokks kvenna orðið

Við erum mjög ánægð að fá Helenu í Hamingjuna. Helena er frábær sóknarmaður sem getur spilað allar 3 fremstu stöðurnar á vellinum og með góðan hægri fót. Hún passar vel inní hópinn okkar, leikmaður með reynslu en einnig með hungur í að gera betur.

Hjartanlega velkomin í Hamingjuna Helena! ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings