
Víkingur fer af stað með nýtt og spennandi heilsueflingarverkefni fyrir 60 ára og eldri sem fram fer í Virkinu í Safamýri. Markmiðið er að bjóða upp á markvissa og skemmtilega hreyfingu í jákvæðu og styðjandi umhverfi þar sem þátttakendur geta unnið að bættri heilsu, aukinni vellíðan og notið samveru með öðrum. Til að byrja með verður boðið upp á sex vikna heilsueflingarnámskeið sem hefst mánudaginn 27. apríl. Æfingar fara fram tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum kl. 10:30–11:30, og verða sniðnar að mismunandi getu þátttakenda með áherslu á örugga og faglega leiðsögn.
Skráning opnar í næstu viku og fer fram í gegnum Abler.
Verð fyrir 6 vikna námskeið er 13.900 kr.
Þjálfari námskeiðsins er Bjarney Gunnarsdóttir, íþróttafræðingur með víðtæka reynslu af þjálfun og kennslu. Hún er 43 ára og er að ljúka meistaragráðu í íþrótta- og heilsufræði, auk þess að hafa lokið diplómu í hagnýtri heilsueflingu. Hún hefur starfað við þjálfun og kennslu allra aldurshópa, allt frá börnum á leikskólaaldri til eldra fólks á Hrafnistu. Hún tók þátt í stofnun Almenningsíþróttadeildar Víkings og þjálfaði skokkhóp deildarinnar auk þess að bjóða upp á námskeið í stafgöngu. Bjarney hafði einnig frumkvæði að því að koma á fót hjólreiðahópi Víkings sem er í dag orðinn að sjálfstæðri deild innan félagsins. Hún stofnaði íþróttaskóla fjölskyldunnar árið 2013. Aðalmarkmiðið með íþróttaskólanum var að bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu, skemmtun og samveru fyrir alla fjölskylduna. Bjarney hefur sömuleiðis starfað í grunnskóla sem umsjónarkennari, íþrótta-og sundkennari auk þess að sinna útivistarvali á unglingastigi. Þá hefur hún einnig sinnt afleysingu sem íþróttakennari bæði í Kvennaskólanum og Menntaskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað sem yfirþjálfari íþróttaskóla HSV sem er samstarfsverkefni Ísafjarðarbæjar, HSV, grunnskólans og íþróttafélaganna.
Boðið verður upp á kynningarfund fyrir áhugasama þar sem farið verður yfir innihald námskeiðsins, fyrirkomulag og skráningu.
📍 Staður: Veislusalur Víkings, Safamýri 26
🗓 Dagsetning: Miðvikudagurinn 22. apríl
🕛 Tími: Kl. 12:00
Á fundinum verður farið ítarlega yfir skráningarkerfið Abler og boðið upp á aðstoð við skráningu fyrir þá sem þess óska.
Áfram Víkingur!❤️🖤