Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, og Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur.

Grindavík spilar á Víkingssvæðinu í Safamýri í sumar

Knattspyrnufélagið Víkingur og Ungmennafélag Grindavíkur hafa gert með sér samkomulag um að meistaraflokkar Grindavíkur í knattspyrnu, karla og kvenna, leiki og æfi á Víkingssvæðinu í Safamýri í sumar.

Töluverður aðdragandi er að málinu sem þurfti stuðning og samþykki Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Víkingur lánar Grindavík, endurgjaldslaust, aðstöðuna í sumar en Ráðuneytið og Reykjavíkurborg tryggja að umgjörð fyrir leiki liðanna verði til mikils sóma m.a. með framlagi á borð við nýja vallarklukku og að stúkusætum í eigu ÍBR verði komið upp við völlinn.

Meistaraflokkar Grindavíkur munu æfa á grasæfingasvæðinu í Safamýri en spila leiki sína í Lengjudeildunum á gervigrasvellinum. Grindavík mun leggja til vallarstjóra og starfsmenn  við íþróttamannvirkin í Safamýri en fá á móti skrifstofuaðstöðu og annan aðgang að mannvirkjunum skv. samkomulagi. Einnig mun Grindavík stilla upp auglýsingaskiltum með sínum styrktaraðilum við völlinn í sumar.

Lagt er upp með að fyrsti leikur beggja liða, karla og kvenna, í Lengjudeildunum verði leiknir í Víkinni með Íslandsmeistara umgjörð og mun Knattspyrnudeild Víkings manna miða- og veitingasölu til að Grindvíkingar geti notið dagsins í stúkunni. Þá mun allur ágóði af miða- og veitingasölu renna óskiptur til Grindvíkinga, sem fylla vonandi völlinn í bæði skiptin.

Það er félaginu og Víkingum öllum ákaflega ánægjulegt að geta aðstoðað Grindvíkinga með þessu hætti í sumar. Frá fyrsta samtali höfum við lagt áherslu á að leita lausna með Grindvíkingum en til þess þurfti einnig sterka aðkomu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg. Við erum þakklát fyrir það hversu vel var tekið í þetta frá fyrsta fundi.

segir Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings.

Við í Grindavík erum afar þakklát Víking fyrir allt saman. Við erum komin með heimavöll í sumar og getum þurrkað þá óvissu út og gefið allt í botn fyrir komandi keppnistímabil. Bæði liðin okkar ætla sér langt og þetta er stórt skref fyrir okkur. Víkingur í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðneytið og Reykjavíkurborg eiga hrós skilið fyrir þetta. Engin orð fá lýst því hversu þakklát við erum.

segir Þorleifur Ólafsson, framkvæmdastjóri UMFG.

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Óskar Borgþórsson til Víkings

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Félagið

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Einar Guðnason tekur við þjálfun meistaraflokks kvenna

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Félagið

Ársskýrsla Knattspyrnufélagsins Víkings og ársreikningar 2024

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Breytingar í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Félagið

Dagbjört Lena ráðin Íþróttafulltrúi Víkings

Lesa nánar