Freyja Stefánsdóttir til Djurgården

Freyja Stefánsdóttir (f. 2007) hefur verið seld til sænska félagsins Djurgården.

Freyja er uppalinn Víkingur og var á sínum tíma yngst allra Víkinga til að skrifa undir samning við Knattspyrnudeild Víkings, en hún hefur spilað 106 meistaraflokksleiki fyrir félagið og skorað í þeim 30 mörk. Auk þess hefur Freyja spilað 35 leiki fyrir yngri landslið Íslands og tók þátt í lokakeppni EM nú í sumar með U19 landsliði Íslands.

Freyja varð bikarmeistari með Víking árið 2023 og liðið varð Lengjudeildarmeistari sama ár og tók skrefið uppí Bestu deildina þar sem hún hefur spilaði með liðinu síðustu 3 tímabil.

Knattspyrnudeild Víkings óskar Freyju velgengni og hamingju í Svíþjóð og um leið þökkum við Freyju kærlega fyrir sitt framlag til félagsins. Sjáumst fljótlega í Hamingjunni Freyja! ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings