Bjarki Björn Gunnarsson seldur til ÍBV

Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir að ÍBV og Víkingur hafa náð samkomulagi um kaup ÍBV á Bjarka Birni Gunnarssyni. Bjarki var á láni frá Víking hjá ÍBV tímabilin 2023 og 2024 við góðan orðstír. Hann lék upp alla yngri flokka Víkings og fyrir utan stutt stopp í Haukum, Þrótti Vogum og Kórdrengjum hefur hann verið hér í Víkinni allan sinn feril. Bjarki lék 4 leiki fyrir meistarflokk Víkings.

Gefum Kára Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála orðið.

Bjarki er uppalinn Víkingur og frábær fótboltamaður, gott auga fyrir spili og  getur leyst margar stöður. Hann hefur frábæra vinstri löpp og er gríðarlega fastur fyrir. Hann hefur verið óheppinn með meiðsli síðustu ár en við erum virkilega spennt að fylgjast með honum og efumst ekki um að hann slái í gegn hjá ÍBV.

Knattspyrnudeild Víkings þakkar Bjarka fyrir framlag sitt til félagsins og um leið óskum við honum góðs gengis í búningi ÍBV.

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Kristján Rafn Oddsson gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Elvar Otri Hjálmarsson gengur til liðs við Víking

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Ögmundur Kristinsson í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Uppskeruhátíð barna- og unglingaráðs í handbolta

Forsíðufrétt, Handbolti

Dagbjört ráðin sem markaðs- og sölufulltrúi og verkefnastjóri BUR

Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings