Bergdís Sveinsdóttir framlengir

Kæru Víkingar. Það er með miklu stolti og hamingju sem við tilkynnum að Bergdís Sveinsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.

Bergdís hefur verið einn af lykilleikmönnum meistaraflokks kvenna undanfarin ár og skipað stóran sess innan liðsins. Hún hefur vaxið mikið í sínu hlutverki, bæði innan vallar sem utan, og er í dag mikill leiðtogi í hópnum.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Bergdís nú þegar leikið 79 leiki fyrir meistaraflokk félagsins og skorað í þeim 26 mörk. Þá hefur hún einnig verið fastamaður í öllum yngri landsliðum Íslands þar sem hún á að baki 51 landsleik.

Við erum afar ánægð með að Bergdís verði áfram hluti af okkar metnaðarfulla starfi næstu árin og hlökkum til að fylgjast með henni halda áfram að vaxa og dafna í okkar búningi. Áfram Víkingur! ❤️🖤

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hilmir Christiansen skrifar undir sinn fyrsta samning