Ármann Ingi Finnbogason í Hamingjuna!

Kæru Víkingar. Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir að Ármann Ingi Finnbogason hefur hefur skrifað undir samning til ársins 2029 við félagið. Ármann er fæddur árið 2004 og er uppalinn hjá ÍA. Ármann lék á láni hjá Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar en lék sumarið 2023 í Lengjudeildinni með ÍA og 2024 í Bestu deildinni.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið

Ármann er mjög áræðinn og leikinn kantmaður með góðan vinstri fót og hefur mikið af þeim eiginleikum sem kantmaður Víkings þarf að hafa. Það verður mjög spennandi að fylgjast með honum í sumar.

Íslandsmeistarar Víkings bjóða Ármann Inga Finnbogason hjartanlega velkominn í Hamingjuna ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings