Æfingahópur hjá U21 karla valinn

Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið 26 leikmenn frá 14 félögum í hóp sem æfir dagana 7. og 8. febrúar.

Víkingur á þrjá fulltrúa í hópnum en það eru þeir Ari Sigurpálsson, Danijel Dejan Djuric og okkar nýjasti leikmaður Sveinn Gísli Þórkelsson.

Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir vináttuleik gegn Írlandi 26. mars sem leikinn verður í Cork á Írlandi. Æfingahópurinn samanstendur af leikmönnum sem leika á Íslandi.

Við óskum leikmönnunum okkar innilega til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings