Freyja Stefánsdóttir valin í U16 ára landsliðið
23. júní 2023 | KnattspyrnaÞórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í Norðurlandamóti sem fer fram í Sundsvall, Svíþjóð dagana 5.-13. júlí.
Víkingur á einn fulltrúa í hópnum en Freyja Stefánsdóttir, leikmaður meistaraflokk kvenna hefur verið valin í hópinn fyrir verkefnið.
Freyja sem er fædd árið 2007 og því á 16 ára aldursári hefur komið gríðarlega sterk inn í leikmannahóp Víkings í sumar og hefur komið við sögu í öllum 12 leikjum Víkings og skorað samtals 4 mörk.
Við óskum Freyju innilega til hamingju með valið og óskum henni góðs gengis með landsliðinu.