Viktor Örlygur framlengir við Víking

Okkar eini sanni Viktor Örlygur Andrason hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Víkings til ársins 2025.

Viktor Örlygur Andrason er uppalinn Víkingur sem kemur úr frægum 2000 árgangi Víkings og spilaði upp alla yngri flokka Víkings. Hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokks leik fyrir Víking árið 2016 þá aðeins 16 ára gamall og kom það sumarið við sögu í þremur leikjum í Pepsi Max deildinni.

Viktor er í dag einn af lykilmönnum Víkings og hefur spilað 135 leiki fyrir meistaraflokk Víkings og skorað í þeim níu mörk. Þá á hann einnig 10 leiki fyrir U21 árs landsliðið og fjóra A landsleiki.

Knattspyrnudeild Víkings er afar ánægð með að hafa framlengt samning Viktors Örlygs og hlakkar til áframhaldandi velgengni á vellinum.

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning