Agnes og Darvis útnefnd borðtennisfólk ársins hjá BTÍ

jör á bortennismanni og -konu ársins fór fram fyrr í mánuðinum. Stjórn BTÍ heldur utan um kjörið en þar geta leikmenn á styrkleikalista sem og stjórn BTÍ kosið um hverjir verða útnefndir sem borðtennisfólk ársins. Í ár voru kosin þau Agnes Brynjarsdóttir og Ingi Darvis Rodriguez.

Þrátt fyrir skrítið keppnistímabil þetta árið þá náðist að ljúka deildarkeppni og halda stóru mót tímabilsins og þar voru bæði Agnes og Darvis áberandi.

Agnes varði Íslandsmeistaratitilinn í einliðaleik kvenna þegar hún varð meistari annað árið í röð aðeins 14 ára gömul. Þá varð hún einnig deildar- og Íslandsmeistari með kvennaliði Víkings í Raflandsdeildinni.

Darvis vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í einliðaleik karla á árinu en hann varð einnig Íslandsmeistari með karlaliði Víkings í Raflandsdeildinni. Þá spilaði Darvis með Sportsklubben Heros í Noregi sl. vetur og unnu þeir næst efstu deildina í Noregi.

Við óskum Agnesi og Darvis til hamingju með þessa nafnbót.

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning