Tómas Þórisson lánaður til Njarðvík
27. febrúar 2023 | KnattspyrnaMiðjumaðurinn Tómas Þórisson hefur verið lánaður til Njarðvíks út keppnistímabilið 2023.
Tómas er 20 ára gamall og hefur leikið upp alla yngri flokka Víkings og lék 3 leiki með meistaraflokk Víking á síðustu leiktíð.
Tómas kemur úr efnilegum hóp leikmanna úr akademíu Víkings og fær hann mikilvægan spilatíma með Njarðvík í Lengjudeildinni á komandi tímabili.
Við óskum Tómasi góðs gengis á komandi tímabili.